Nýr vefur ISON er kominn í loftið. Á honum eru engin lykilorð: þú skráir þig inn með kennitölu fyrirtækisins eða netfangi og færð kóða í tölvupósti. Gömlu notendanöfnin og lykilorðin af eldri vefnum virka því ekki lengur, en það tekur aðeins mínútu að komast inn.
Sláðu inn kennitölu eða netfang á Mínum síðum og smelltu á „Senda tengil eða kóða í pósti“. Þú færð nýjan kóða í tölvupósti, slærð hann inn og ert komin(n) inn. Ekkert lykilorð að muna.
Sá sem skráir fyrirtækið fyrst verður aðalnotandi þess. Annað starfsfólk fær aðgang sem notendur undir sama fyrirtækjareikningi.
Það er rétt, notendanöfn og lykilorð af gamla vefnum voru ekki flutt yfir. Skráðu þig inn með kennitölu eða netfangi eins og lýst er hér að ofan.
Smelltu á „Þetta er ekki okkar netfang“ eða hafðu samband við okkur og við uppfærum skráninguna.
Athugaðu ruslpóstmöppuna. Kóðinn gildir í 15 mínútur og þú getur beðið um nýjan. Ef ekkert berst skaltu hafa samband við okkur.
Sláðu inn kennitölu fyrirtækisins á Mínum síðum og sæktu um fyrirtækjareikning, eða hafðu samband við okkur.
Nei. Þú færð kóða og innskráningartengil í tölvupósti í hvert sinn.
Sendu okkur línu á [email protected] eða hringdu í 588-2272 og við hjálpum þér að komast inn.
