Við höfum opnað nýja vefsíðu ISON. Hún er hönnuð frá grunni með fagfólk í huga: einfaldari leit, öll vörumerkin á einum stað, verð og pantanir fyrir fyrirtæki og námskeiðin okkar á sama stað. Hér er stutt yfirlit yfir það helsta.
ISON er heildsala fyrir fagfólk. Verð og pöntunarmöguleikar birtast þegar þú hefur skráð þig inn með fyrirtækjaaðgangi.
Innskráningin er einföld: þú slærð inn netfang eða kennitölu og færð sendan kóða eða innskráningartengil í tölvupósti — ekkert lykilorð að muna. Ef fyrirtækið þitt er ekki enn með aðgang getur þú sótt um fyrirtækjareikning á sama stað.
Vefsíðan lagar sig að skjánum, hvort sem þú ert í tölvu, spjaldtölvu eða síma — svo það er jafn auðvelt að panta af gólfinu á stofunni og frá skrifborðinu.
Skráðu þig inn undir „Mínar síður“ með netfangi eða kennitölu. Ef fyrirtækið er ekki með reikning getur þú sótt um hann þar.
Nei. Þú færð sendan kóða og innskráningartengil í tölvupósti.
Undir „Námskeið“ í valmyndinni. Skráðu þig inn til að sjá dagsetningar og verð og til að skrá þig.
Við tökum öllum ábendingum fagnandi. Sendu okkur línu á [email protected] eða hringdu í 588-2272.
