Hafa samband

Opnunartími

  • Skrifstofa og símaþjónusta: kl. 09:00–16:00
  • Lager / vöruafhending: kl. 09:00–16:00
  • Sýningarrými: kl. 13:00–16:00

ISON er íslenskt fjölskyldufyrirtæki, stofnað af hjónunum Jakobi R. Garðarssyni og Sólrúnu Helgu Óskarsdóttur. Í yfir 30 ár hefur ISON byggt upp öfluga starfsemi og skapað sér sterkan sess á íslenskum markaði.

Í dag flytjum við inn og dreifum fjölbreyttu úrvali af þekktum og spennandi vörumerkjum, allt frá fagvörum fyrir hár- og snyrtigeirann yfir í snyrtivörur, raftæki og vörur fyrir almennan neytendamarkað. Við erum stöðugt að leita að nýjungum og vörumerkjum sem eiga erindi við íslenska neytendur.

Þrátt fyrir vöxt og þróun er kjarninn sá sami. ISON er og verður fjölskyldufyrirtæki þar sem persónuleg þjónusta, metnaður og sterk tengsl við viðskiptavini skipta okkur máli.

Við erum stolt af vörumerkjunum sem við stöndum fyrir, fólkinu okkar og þeirri vegferð sem hefur mótað ISON síðustu þrjá áratugi – og við horfum björtum augum til þess sem fram undan er.

Húsnæði ISON að Skútuvogi 11a í Reykjavík
Loftmynd af húsnæði ISON við Skútuvog

Starfsfólk