ISON
Leita
0 kr. 0

Karfa

Engin vara í körfu.

Fréttir

Uppercut Deluxe tók yfir Reykjavík!

25. okt 2026
Kristinn Óli Hrólfsson

Það var nóg um að vera dagana 18.–20. október þegar Chris Brownless og Vikki Smith frá Uppercut Deluxe mættu til landsins til að deila þekkingu sinni og hitta íslenskt hárgreiðslufólk og rakara.

Við byrjuðum hjá Herramönnum í Hamraborg þar sem við héldum opið hús á sunnudagskvöldinu. Þar var góð stemning, klippingar, spjall og auðvitað Uppercut Deluxe í aðalhlutverki.

Á mánudegi og þriðjudegi tók svo við tveggja daga dagskrá hjá Ison í Skútuvogi. Chris og Vikki sýndu ólíkar klippingar á módelum, deildu reynslu sinni og svöruðu spurningum þátttakenda. Eftir hádegi var svo komið að verklegu námskeiðunum þar sem þátttakendur tóku sjálfir til við klippingarnar með Chris og Vikki sér við hlið.

Þetta voru þrír frábærir dagar þar sem hárgreiðslufólk og rakarar komu saman, lærðu hvert af öðru og áttu góða stund.

Stórar þakkir til Chris og Vikki fyrir heimsóknina, Herramanna fyrir frábært samstarf og allra sem mættu og gerðu þessa daga svona skemmtilega!

At ISON, we work closely with salons and professionals to support not only great results, but great experiences. From reliable tools to professional-grade haircare, our focus is helping you create a salon environment your clients trust and return to.

Fleira áhugavert

Greiðslumátar: Visa, American Express, Mastercard og Netgíró

Velkomin á nýjan vef ISON

Gömlu notendanöfnin og lykilorðin virka ekki lengur. Skráðu þig inn á Mínum síðum með kennitölu fyrirtækisins eða netfangi og þú færð kóða í tölvupósti. Ekkert lykilorð.
Hafa samband
Skútuvogur 11a
- 104
Reykjavík
+354 588 2272
490102-3960
[email protected]
Opnunartími
Skrifstofa og símaþjónusta: kl. 09:00–16:00
Lager / vöruafhending: kl. 09:00–16:00
Sýningarrými: kl. 13:00–16:00