Lýsing
ISON ER NÚ OPINBER DREIFINGARAÐILI FYRIR Y.S. PARK Á ÍSLANDI
Við erum spennt að tilkynna að ISON er nú opinber dreifingaraðili fyrir hágæða greiður og bursta frá Y.S. PARK.
Y.S. PARK er eitt þekktasta og virtasta verkfæramerki í heimi hárgreiðslu. Vörurnar eru hannaðar í nánu samstarfi við fagfólk og bjóða einstaka blöndu af gæðum, hönnun og notkunarþægindum.
Hvort sem þú ert að leita að greiðum, burstum eða öðrum sérhæfðum verkfærum fyrir vinnuna þína, þá finnur þú úrvalið hjá okkur.