Lýsing
Bakvið Stólinn – 7. október
Bakvið stólinn er ný röð örnámskeiða þar sem fagfólk kemur og deilir innsýn, formúlum og aðferðum.
Við fáum til okkar Bryndísi Helgu, sem margir þekkja frá Barbarellu og nú síðast frá Skemmunni í Hafnarfirði. Bryndís hefur unnið lengi með COLOR.ME og ætlar að deila með okkur sínum uppáhaldsformúlum, hvers vegna hún velur einmitt þessa línu og hvernig hún nálgast litavinnu í daglegu starfi.
Við skoðum myndir af verkefnum sem hún er stolt af, ræðum hennar aðferðir og fáum innsýn í hvernig hún tæklar hversdaginn bakvið stólinn.
Létt og persónuleg vinnustofa – fyrir fagfólk sem vill læra meira, fá innblástur og heyra frá öðrum fagmanni í greininni.
Dagsetning: 7. október
Tími: 9:15–11:00
Staðsetning: Ison heildverslun
Verð: Frítt
Skráning: kristinn@ison.is
Við hlökkum til – og við erum spennt að sjá hver sest í stólinn næst.