Lýsing
Bakvið Stólinn – 3. september
Bakvið stólinn er ný röð örnámskeiða þar sem fagfólk kemur og deilir innsýn, formúlum og aðferðum.
Við hefjum seríuna með Kötu, Platinum Key hjá Kevin.Murphy og einum af eigendum Sprey. Kata hefur tekið þátt í fjölmörgum Fashion Week sýningum og starfað bæði hér heima og erlendis. Hún hefur unnið með COLOR.ME, Gloss og nú líka +CODE í fjölda ára og þekkir þessar línur út og inn.
Hún kemur í heimsókn, spjallar við Kristinn og gesti um lífið í faginu, sína nálgun á litavinnu og hvað hún treystir á í daglegu starfi.
Kannski fáum við líka að sjá sýnikennslu eða hennar eigin aðferðir í verki.
Létt og persónuleg vinnustofa – fyrir fagfólk sem vill læra meira, fá innblástur og heyra frá öðrum fagmanni í greininni.
Dagsetning: 3. september
Tími: 9:15–11:00
Staðsetning: Ison heildverslun
Verð: Frítt
Skráning: kristinn@ison.is
Við hlökkum til – og við erum spennt að sjá hver sest í stólinn næst.